Hvernig nenna þau þessu?

Ég er allllls ekki að setja út á kröfur kennara.  En það sem ég skil ekki er hve fljót þessi stétt er alltaf að sætta sig við lítið.   Það eru settar fram kröfur..  Eins og í þetta skiptið.. 24%-46%.   Svo kemur að viðræðum og það eru boðin 10% eftir smá þras og vesen.  Þá er bara stokkið á það og aftur hótanir um verkfall eftir 1-2 ár.

 Ég var að vinna á leikskóla fyrir nokkrum árum þegar átti að gera allt vitlaust.  Svo var bara allt í einu búið að semja og launin mín hækkuðu ekki um krónu??  Ég er jú ekki leikskólakennari að mennt en samt sem áður á skííítakaupi.  Og ég hélt að það væri verið að krefjast hærri launa til að geta mannað stöður á leikskólum en svo var ekki, heldur hækkuðu laun 5 af 25 starfsmanna á leikskólanum sem ég var að vinna á???  Hvað er í gangi?

 Þetta er allt voðalega skrítið, kannski er ég að bulla útí loftið og ég skal ekki segja að ég sé ekki að því ef einhver hefur eitthvað út á þennan stutta pistil að segja.  Ég bara hreinlega skil ekki hvernig þetta virkar allt saman.  Mér finnst kröfurnar alltaf miklar, og réttmætar.  En skrifað undir einhverra aura hækkun í stað þess að ganga bara langt einu sinni og þurfa ekki að standa í þessu kjaftæði ár eftir ár.

Koma svo, gera þetta almennilega og það áður en ég þarf að setja barn á leikskóla svo ég þurfi ekki að missa úr vinnu hehe :)

kv.

Valli 


mbl.is Kennarar telja að laun eigi að hækka um 24-46%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Þetta virkar þannig að kennarar hafa samþykkt samninga sem lagðir hafa verið fram með litlum meirihluta.  Sumum finnst þeir ekki þurfa meira

Rósa Harðardóttir, 9.4.2008 kl. 18:22

2 identicon

Í raun sett lög á grunnskólakennara, 2004 svo því sé haldið til haga.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband